Hæ Hæ allir,
Vá það er svo langt síðan að ég hef skrifað og svo ótrúlega mikið
búið að gerast.
Ég er ekki lengur veik, ég hef það alveg mjög gott. Við erum með
heimsókn, erum búin að vera með heimsókn síðan 22. feb. Amma mín og
afi eru hérna hjá okkur og það er alveg frábært. Við ætlum til
Köben um helgina sofa þar tvær nætur, þau eru svo að fara heim á
sunnudaginn

það verður svo erfitt að kveðja þau
Ef ég fer pínu til baka, þá fór ég til Íslands 17.feb til 22.feb,
ég fór á góugleðina hjá fylki alveg geggjað gaman, ég var svo mest
með fjölskyldunni og hafði það rosa gott

Æi Benni sorry að ég
hringdi ekki á sunnudeginu en ég var ekkert rosalega hress eftir
djammið. Hefði svo viljað spjalla við þig
En það var alveg snilld að koma heim í nokkra daga, svo fórum við,
amma, afi saman til Danmörku
Vitið hvað? er mín ekki bara byrjuð í dösku, geggjað gaman

búin
að fara í 2 tíma og þetta er mjög cool, kennarinn minn sagði að ég
væri ein af þeim klárustu í bekknum og ég hélt að ég kynni ekkert í
dönsku, ég var ekkert smá stolt

Það er ein stelpa með mér í dösku
tíma sem er alveg ótrulega cool, við erum líka að læra það sama í
skólanum, svo sagði hún mér að hún á heima í blokkinni fyrir framan
mína blokk sem er mjög cool.
Ég er að fara að byrja á fullu í verkefnum núna í miðjum mars, sem
er mjög cool, þá hef ég nóg að gera. Gunni er loksins búinn í
verkefnum og prófum og var að byrja í skólanum, mæta í tíma og
svoleiðis, sem er mjög gott fyrir mig því þá er ekki eins mikið að
gera hjá honum, meiri tími fyrir mig.
Það er enn verið að vinna í blokkinni hjá okkur, en það er eitt svo
cool að þeir eru á morgun að fara að setja glerið fyrir svalirnar
okkar sem er alveg yndislegt, þá getur maður farið að nota þær
En núna ætla ég að kveðja, ég vona að þið hafið það öll alveg
rosalega gott
Kossar og knús
Erla